Skip to content

All podcasts

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

heilsuhladvarp · 112 episodes

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá? Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%. Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út? Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum. Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka. Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar! Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!  Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Recent from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Máttur kjötsoðsins – Getur það hjálpað við bólgum og meltingarsjúkdómum? | Melting | Histamín | Omega-3 | Innmatur | Salt | Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir

Ep. 112 · 1h 33m

🍲 Getur gamla og góða kjötsoðið verið lykill að betri meltingu og minni bólgum? Í þessum fróðlega þætti fáum við aftur til okkar Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni, eða Kollu, eins og við köllum hana. 🌿

Tónheilun og tíðni - Getur verið að hljóð hafi meiri áhrif á okkur en við gerum okkur grein fyrir? – Vala Sólrún Gestsdóttir

Ep. 111 · 1h 23m

🎙️ Geta hljóð, tíðni og titringur haft meiri áhrif á líkamlega og andlega heilsu okkar en við gerum okkur grein fyrir? Í þessum þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms fáum við til

Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira

Ep. 110 · 1h 59m

Auður Elísabet starfaði lengi sem hjúkrunarfræðingur, meðal annars á Kvennadeild Landspítalans þar sem hún vann með fólki í erfiðum og djúpum aðstæðum frá vöggu til grafar. Snemma í námi sínu kynnt

🎙️ Þunglyndislyf á meðgöngu - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki

Ep. 109 · 1h 9m

Ný íslensk rannsókn, sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, sýnir að nýburar mæðra sem taka SSRI- eða SNRI-þunglyndislyf á meðgöngu eru meira en tvöfalt líklegri til að þurfa aðstoð eða að

Elvar og Hilmar Leonardssynir, sjúkraþjálfari og læknir og jafnframt heilbrigðisverkfræðingar sem fara sína leið í því að hámarka heilsu og deila hér með okkur vitneskju sinni og djúpum fróðleik ;)

Ep. 108 · 2h 22m

❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins 🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án ó

Listen to Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Follow Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms and thousands of other podcasts in Glanced.

Get Started

Try free for 14 days. No credit card required.