Taboo hlaðvarp
Árni Björn og Guðrún Ósk · 34 episodes Explicit
Taboo er hlaðvarp þar sem við, Árni og Guðrún, köfum djúpt í málefni sem oft eru sögð ”ekki við hæfi” - eins og kynlíf, nekt, kynhneigð, swing, opin sambönd, OnlyFans o.fl. Í hverjum þætti opnum við á einlægar samræður þar sem við deilum okkar eigin reynslu og spyrjum hvort annað að spurningum sem fáir þora að spyrja og ögrum þar af leiðandi ríkjandi hugmyndum. Við erum hjón sem höfum verið saman í 15 ár og þar af gift í 10 ár og höfum eflaust gengið í gegnum flest allt sem hægt er að ganga í gegnum í hjónabandi. Við elskum andleg málefni og setjum heilsuna okkar í fyrsta sætið. Við erum foreldrar þriggja dásamlegra barna og elskum að lifa lífinu. Það er okkar markmið að tala um ögrandi og stundum erfið málefni út frá okkar reynslu. Það er allt stutt í húmorinn hjá okkur og við tökum okkur ekki of alvarlega. Mottó-ið okkar er ”lífið er of stutt til að vera venjuleg”. Ef þér finnst gaman að kafa undir yfirborðið og vilt hlusta á raunveruleg samtöl um það sem við öll hugsum en fáir segja upphátt - þá er Taboo fyrir þig. Athugið að þættirnir eru ekki ætlaðir yngri en 18 ára.
Recent from Taboo hlaðvarp
Þáttaröð 2 - Þáttur 10. - Bjargey Ingólfsdóttir
Hæ og velkomin í þátt númer 10 í annarri seríu af Taboo. Bjargey Ingólfsdóttir er sennilega mörgum kunn enda hefur hún verið áberandi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum undanfarin ár. Hún er
Þáttaröð 2 - Þáttur 9. - Helgi Jean Claessen
Hæ elskurnar Þessi þáttur var algjör negla! Við fengum til okkar Helga Jean aka KakóHelgi aka Graðasti maður íslands. Við áttum ótrúlega skemmtilegt spjall og fengum að heyra söguna hans Hel
Þáttaröð 2 - Þáttur 8. - Gott kynlíf?
Velkomin í nýjan þátt af Taboo. Við förum svolítið um víðan völl en ræðum aðallega hugtakið "gott kynlíf". Hvað er það og hvað þarf til? Er til eitthvað eitt rétt "gott kynlíf" eða
Þáttaröð 2 - Þáttur7. - Matilda Gregersdotter
Í þessum þætti fengum við frábæran gest eða hana Matildu Gregersdotter. Matilda er MCC markþjálfari með yfir 20 ára reynslu sem markþjálfi. Hún er líka mikil áhugamanneskja um Tantra, kynlíf og hinn a
Þáttaröð 2 - Þáttur 6. - Kynorka = Lífsorka
Hæ öll Í þessum þætti tölum við um kynorkuna og hvernig það er hægt að nýta hana sem lífsorku og drifkraft í lífinu. Njótið vel!
Listen to Taboo hlaðvarp
Follow Taboo hlaðvarp and thousands of other podcasts in Glanced.
Get StartedTry free for 14 days. No credit card required.